Skólastefnan
-
Í Hagaskóla afli nemendur sér þekkingar og leikni og temji sér vinnubrögð sem stuðla að stöðugri viðleitni til menntunar og þroska
-
Skólastarfið leggi grunn að sjálfstæðri hugsun nemenda og þjálfi hæfni þeirra til samstarfs við aðra
-
Skólabragurinn stuðli að því að nemendur tileinki sér gott siðgæði, sýni virðingu og vinnusemi
Kennsluhættir og námsmat
- Lögð sé áhersla á að hver nemandi njóti alhliða menntunar við sitt hæfi og fái hvatningu til náms í samræmi við þroska sinn og áhuga
- Lögð sé áhersla á að þróa fjölbreytta kennsluhætti og námsmat
- Mótuð sé stefna sem miði að því að námsframvinda hvers nemanda sé í samræmi við getu hans og þroska
Líðan nemenda
- Nemendur finni öryggi og vellíðan í skólanum
- Samskipti starfsfólks og nemenda mótist af gagnkvæmri virðingu og hlýju
Aðstæður til náms og vinnu
- Skólahúsnæði og umhverfi þess sé hlýlegt og vistlegt.
- Skólalóðin sé bæði hluti af námsumhverfi og aðlaðandi og öruggt leiksvæði.
- Fyrir hendi sé góð aðstaða til tómstundastarfs.
Innra starf
- Hagaskóli vinni í átt að markmiðum sínum með ákveðnum hætti þar sem öllum er ljóst til hvers er ætlast að þeim og hvaða svigrúm er til athafna.
- Í Hagaskóla verið þróaðir mælikvarðar til að meta nám og aðra þætti skólastarfsins.
- Hagaskóli sé þekkingarsamfélag.
- Starfsmenn finni vellíðan og öryggi í starfi.
Heimili og skóli - grenndarsamfélagið
- Gagnkvæm og virk upplýsingamiðlun sé milli heimila og skóla.
- Öflugt menningar- og listalíf sé starfrækt innan Hagaskóla.
- Reglulegt samráð og samvinna sé við þá aðila sem koma að starfi unglinga í skólaumhverfinu.











