Reglur um mætingar
Ef nemandi mætir í kennslustund þegar 15 mínútur eru liðnar af kennslustundinni telst nemandinn vera fjarverandi.
Umsjónarkennari sendir mætingu heim vikulega – Foreldrar og nemendur hafa viku til að bregðast við.
Mætingareinkunn verður gefin í heilum og hálfum tölum. Við hvern punkt lækkar mætingareinkunn um 0,1.
Viðbrögð við versnandi mætingu
- Ef nemandi fer niður fyrir 8 í mætingareinkunn ræðir umsjónarkennari við nemandann.
- Ef nemandi fer niður fyrir 7 í mætingareinkunn hefur umsjónarkennari samband við foreldra.
- Ef nemandi fer niður fyrir 6 í mætingareinkunn vísar umsjónarkennari málinu til nemendaþjónustunnar og boðar foreldra á fund.
- Ef nemandi fer niður fyrir 5 í mætingareinkunn vísar umsjónarkennari í samráði við nemendaþjónustu máli nemandans til skólastjóra/aðstoðarskólastjóra sem boðar foreldra á fund.
- Ef nemandi fer niður fyrir 4 í mætingareinkunn vísa skólastjórnendur málinu til nemendaverndarráðs og Vesturgarðs.
- Ef nemandi fer niður fyrir 2 í mætingareinkunn vísa skólastjórnendur málinu til nemendaverndarráðs og barnaverndar.











