Beint á leiđarkerfi vefsins

Hagaskóli

Heildarmat á skólastarfi í Hagaskóla

Í febrúar 2011 fór fram heildarmat á skólaastarfi í Hagaskóla framkvæmt af starfsfólki í stýrihópi um heildarmat Menntasviðs. Hagaskóli var einn af sjö skólum þar sem Menntasvið ákvað að fram færi heildarmat á skólastarfi skólaárið 2010-2011. Gagna var aflað með viðtölum, vettvangsathugunum og rýnihópum ásamt því að farið var yfir gögn um skólastarfið.

Leiðarljós við matið var: Að börnum í borginni líði vel, fari stöðugt fram og öðlist uppeldi og menntun fyrir líf og starf.
Matið er liður í að styðja við skólastarf og kemur til viðbótar sjálfsmati skólanna. Stefna Reykjavíkurborgar í menntamálum er höfð til viðmiðunar í matinu auk annarra ramma um skólastarf; laga, reglugerða, aðalnámskrár og stefnumótunar borgarinnar í starfsmannamálum og mannréttindamálum.

Heildarmat á skólastarfi í Hagaskóla | Skýrsla

Mat á skólastarfi

Ákvæði um mat og eftirlit með gæðum skólastarfs er í 35.gr. grunnskólalaga nr. 91/2008, þar segir: Markmið mats og eftirlits með gæðum starfs í grunnskóla eru að:

  • Veita upplýsingar um skólastarf, árangur þess og þróun til fræðsluyfirvalda, starfsfólks skóla, viðtökuskóla, foreldra og nemenda
  • Tryggja að starfsemi skóla sé í samræmi við ákvæði laga, reglugerða og aðalnámskrár grunnskóla
  • Auka gæði náms og skólastarfs og stuðla að umbótum
  • Tryggja að réttindi nemenda séu virt og að þeir fái þá þjónustu sem þeir eiga rétt á samkvæmt lögum 

Ákvæði um innra mat er í 36. gr. laganna, en þar segir: „Hver skóli metur með kerfisbundnum hætti árangur og gæði skólastarfs á grundvelli 35. gr. með virkri þátttöku starfsmanna, nemenda og foreldra eftir því sem við á.“

Nýtt ákvæði um ytra mat sveitarfélaga er í 37. gr., þar segir: „Sveitarfélög sinna mati og eftirliti með gæðum skólastarfs, sbr. 5. og 6. gr., og láta ráðuneyti í té upplýsingar um framkvæmd skólahalds, innra mat skóla, ytra mat sveitarfélaga, framgang skólastefnu sinnar og áætlanir um umbætur. Sveitarfélög skulu leitast við að fylgja eftir innra og ytra mati þannig að slíkt mat leiði til umbóta í skólastarfi.“
Um ytra mat menntamálaráðuneytis er fjallað í 38. gr., þar segir m.a.: „Menntamálaráðuneyti annast greiningu og miðlun upplýsinga um skólahald í grunnskólum á grundvelli upplýsinga frá sveitarfélögum skv. 37. gr. og með sjálfstæðri gagnaöflun. Menntamálaráðuneyti gerir áætlun til þriggja ára um kannanir og úttektir sem miða að því að veita upplýsingar um framkvæmd laga þessara og aðalnámskrár grunnskóla og aðra þætti skólastarfs. …“

Menntaráð ákvað vorið 2007 að láta fara fram heildarmat í 6-7 skólum á ári. Skipaður var stýrihópur heildarmats á Menntasviði til að sjá um framkvæmd matsins undir stjórn Birnu Sigurjónsdóttur, verkefnisstjóra. Alls hefur heildarmat farið fram í 23 grunnskólum í Reykjavík á árunum 2007-2010. Áætlað er að heildarmat fari fram í 7 grunnskólum á skólaárinu 2010-2011.

Markmið heildarmats

  • Aðstoða skóla í ljósi eigin sjálfsmats til að efla skólastarfið og styrkja innviði skólans
  • Styrkja skólabrag og búa til samhljóm í skólanum
  • Gera góðan skóla betri með markvissri hvatningu í starfi
  • Veita skólayfirvöldum upplýsingar um gæði skólastarfs og hvernig skólar framfylgja stefnu borgarinnar í menntamálum 

Tímarammi

Gert er ráð fyrir að allt matsferlið taki sex til sjö vikur og viðtöl og vettvangsathuganir fari fram á 1-2 vikum innan þess tíma.

  • Ákvörðun tekin um athugun í skóla vika 1
  • Haft samband við skólann og látið vita af fyrirhugaðri heimsókn vika 1
  • Upplýsingum safnað saman/prófíll skólans/heimasíða skoðuð vika 1
  • Viðtöl við skólastjórnendur, kynning fyrir starfsfólki vika 2
  • Vettvangsathuganir, rýnihópar vika 3
  • Úrvinnsla og skýrslugerð vika 4-5
  • Skóla gefst færi á að lesa yfir skýrslu vika 5-7
  • Skýrsluskil – formleg vika 6
  • Upplýsingar til menntaráðs í lok annar

Aðferðir við gagnaöflun:

  • Viðtöl við stjórnendur og fulltrúa kennara, fundur með fulltrúum foreldra, fundur með stjórn nemendafélags
  • Rýnihópar – stjórnendur, kennarar (tveir til þrír hópar), annað starfsfólk, foreldrar, nemendur (tveir til þrír hópar)
  • Vettvangsathuganir með gátlista
  • Athugun á skólabrag og kennslu í kennslustundum og hléum
  • Athugun í skóla
  • Athugun í skólastofu
  • Farið yfir gögn:
  • Skólanámskrá og starfsáætlun skólaársins þ.m.t.:
  • Skipurit og starfslýsingar
  • Mannréttindaáætlun
  • Áætlun um foreldrasamstarf
  • Áætlun um starf nemendafélags
  • Yfirlit yfir forföll nemenda og kennara fyrir síðustu heila önn
  • Sjálfsmatsskýrslu og umbótaáætlun
  • Heimasíðu skólans
  • Stundaskrár bekkja/árganga 2010-2011(eins og þær eru afhentar nemendum)
  • Yfirlit yfir valgreinar (kenndar á skólaárinu)
  • Kennsluáætlanir 2010-2011 – sýnishorn af yngra, mið- og elsta stigi
  • Sýnishorn af námsmatsblöðum fyrir öll stig
  • Símenntunaráætlun skólans
  • Upplýsingar um öryggisþætti og áhættumat
  • Yfirlit yfir stöðu skólans í könnunum, skimunum og samræmdum prófum
  • Önnur þau gögn sem skólinn vill leggja fram og varpa ljósi á gæði skólastarfsins

Skýrsla – endurgjöf – eftirfylgd

  • Gerð verður ítarleg skýrsla um hvern skóla sem skapar umræður innan skólans, er jákvæð og bendir á styrkleika skólans og veikleika.
  • Skýrslan afhent skólastjórnendum á fundi með fræðslustjóra. Þeir fá tækifæri til að koma með athugasemdir sem tekið er tillit til við lokagerð.
  • Fundað með skólastjórnendum og niðurstöður kynntar á fundi starfsmanna, fulltrúum foreldra og fulltrúum frá þjónustumiðstöð er boðið að sækja þann fund.
  • Skólinn gerir umbótaáætlun sem byggir á niðurstöðum matsins og skilar til fræðslustjóra.

Frekari eftirfylgni:

  • Komið á samstarfi skóla/netverki um ákveðna þætti sem þarf að vinna með.
  • Skólinn getur fengið ráðgjöf frá Menntasviði eða þjónustumiðstöðvum.

Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar