Beint á leiđarkerfi vefsins

Hagaskóli

Fréttir

24.1.2012

Tćknivikur í 9. bekk - heimsóknir í HR

Háskólinn í Reykjavík hefur boðið nemendum í 9. bekk í Hagaskóla uppá spennandi verkefni með það að markmiði að gefa krökkunum nýja sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra á tækni- og raungreinum. Fyrir áramót var nemendum í 10. bekk boðið upp á sams konar dagskrá sem þótti takast það vel að ákveðið var að bjóða nemendum í 9. bekk einnig. Lögð er áhersla á að sýna þeim leiðir til að nýta tæknina til að skapa, leysa verkefni og öðlast frekari skilning á ólíkum viðfangsefninu. Kennarar úr tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild HR taka þátt í verkefninu af hálfu HR. Allir 9. bekkir í Hagaskóla fara í þrjár heimsóknir í HR næstu þrjár vikurnar á þriðjudögum eða miðvikudögum fyrir hádegi. Viðfangsefnin verða meðal annars: Græjuverkfræði (megatróniks), leikjafræði, segulsvið og rafmótorar og hvernig virka leitarvélar? 

Bekkirnir fara í HR eftirtalda daga:

  • Ţriðjudagurinn 24. janúar: 9.BSÓ, 9.GKÞ, 9.SG
  • Miðvikudagurinn 25. janúar: 9.BSÓ, 9.GKÞ, 9.TMG
  • Ţriðjudagurinn 31. janúar: 9.EKH, 9.ET, 9.SG
  • Miðvikudagurinn 1. febrúar: 9.EKH, 9.ET, 9.TMG
  • Ţriðjudagurinn 7. febrúar: 9.BSÓ, 9.GKÞ, 9.TMG
  • Miðvikudagurinn 8. febrúar: 9.EKH, 9.ET, 9.SG

Skipulag dagsins:

  • Nemendur mæta í skólann samkvæmt stundaskrá.
  • Nemendur fara með rútu í Háskólann í Reykjavík kl. 9:45.
  • Verkefnavinnu í Háskólanum í Reykjavík lýkur kl. 11.30 þannig að nemendur verða komnir aftur í Hagaskóla um 10 mínútum síðar.

Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar

Slóđin ţín:

Um Hagaskóla » Fréttir