Fréttir
23.1.2012
Nemakort í strćtó fyrir grunnskólanemendur
Sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafa unnið stöðugt að því að efla samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Um tíma hefur Strætó boðið námsmönnum á framhaldsskóla- og háskólastigi kaup á svokölluðu Nemakorti við góðar undirtektir. Því er það okkur sönn ánægja að segja frá því að nemakortið verði einnig í boði fyrir nemendur á grunnskólastigi.
Eftir breytinguna stendur kortið sannarlega undir nafni og þjónar öllum nemendum á höfuðborgarsvæðinu á hvaða skólastigi sem þeir stunda. Það er einlæg von okkar að þessar umbætur verði ungu námsfólki og foreldrum þeirra til hagsbóta og hægðarauka.
Nemakortið kostar 15.000 kr. og verður hægt að kaupa á netinu með kreditkorti sem er einfalt og þægilegt. Kortið fer í sölu 28. desember næstkomandi og tekur gildi 1. janúar 2012. Nemakortið er tengt kennitölu nemandans (persónulegt kort) og sent heim hans. Við hvetjum alla til að kynna sér hvernig kaupin fara fram á netinu á www.strætó.is.
Ţeir sem hafa áhuga á að fá áminningu í netpósti um hvenær opnað verður fyrir sölu á kortunum vinsamlegast sendið beiðni þess efnis á kort@straeto.is.
Ef eitthvað er óljóst eða spurningar vakna er ykkur velkomið að hringja í símanúmer 540-2700 eða senda netpóst á sigruns@straeto.is











