Fréttir
23.1.2012
Samstarf viđ Borgarbókasafniđ um heimanám
Viltu læra í notalegu umhverfi og gætir þú ef til vill þegið smáaðstoð við heimanámið?
Í Borgarbókasafni er boðið upp á:
- aðstoð við heimanám í notalegu umhverfi
- stuðning við áframhaldandi nám
- tækifæri til að styrkja sjálfsmyndina
- úrval bóka, kvikmynda, tímarita og tónlistar
- skemmtilegan félagsskap í skapandi umhverfi
Heilahristingur er í boði fyrir fyrir nemendur í 5.-10. bekk og nemendur á innflytjendabraut í Fjölbraut í Breiðholti.
Hvenær og hvar?
Kringlusafn: mánudaga kl. 14.45-16.15
Gerðubergssafn: miðvikudaga kl. 14.30-16.00
Aðalsafn: þriðjudaga og fimmtudaga kl. 15.00-16.30
Sjálfboðaliðar Reykjavíkurdeild Rauða Krossins taka á móti þeim nemendum sem vilja nýta sér heimanámsaðstoðina.
Á heimasíðunni www.heilahristingur.is er hægt að nálgast upplýsingar um verkefnið á ýmsum tungumálaum og er það von okkar að ná sérstaklega til nemenda sem eru með annað móðurmál en íslensku.
Nánari upplýsingar í Hagaskóla veitir Hildur Einarsdóttir deildarstjóri.











