Fréttir
15.5.2012
Endurfundir eldri Hagskćlinga - 45 ára og eldri
4.5.2012
9.TMG sigrađi í stćrđfrćđikeppni grunnskóla BEST
27.4.2012
Hagaskóli fékk brons í skólahreysti
26.4.2012
Liđ Hagaskóla sigurvegari í Spurningakeppni grunnskólanna
Úrslitin í Spurningakeppni grunnskólanna fóru fram á Markúsartorgi í beinni útsendingu á RÚV í gær miðvikudag. Þar áttust við lið Hagaskóla og grunnskóla Dalvíkur.Úrslitin urðu þau að Hagaskóli bar sigur úr býtum með 28 stigum gegn 17. Spurningakeppni grunnskólanna hefur vaxið mikið undanfarið en að þessu sinni tóku 60 grunnskólar þátt í keppninni en eins og jafnan stendur aðeins einn uppi sem sigurvegari að keppni lokinni.
18.4.2012
Vetur kvaddur međ hreinsun
Nemendur í Hagaskóla sýndu samfélagsábyrgð í morgun og tíndu upp rusl í næsta nágrenni skólans. Þau tóku þar með áskorun borgarstarfsmanna um að hver og einn legði sitt af mörkum til að hreinsa borgina eftir veturinn. Krakkarnir fóru um Vesturbæ í flokkum vopnuð latex-hönskum og plastpokum og fylltu hvern pokann af öðrum af kaffimálum, sígarettupökkum, stubbum og flugeldarusli. Af nógu var að taka við helstu umferðargöturnar og í runnum. Eftir þetta litla góðverk var börnunum boðið upp á grillaðar pyslur og notuðu mörg þeirra tækifærið og léku sér í blíðunni þar til að kennsla hófst aftur. Gott morgunverk sem vonandi skapar umræður um góða umgengni og skyldur okkar við samfélagið. Sjá myndir hér.
30.3.2012
Páskaleyfi
Síðasti kennsludagur fyrir páskaleyfi er í dag, föstudaginn 30. mars. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 11. apríl.
29.3.2012
Átta nemendur Hagaskóla verđlaunađir í stćrđfrćđikeppni MR
Verðlaunaafhending í keppni grunnskólanemenda í stærðfræði fór fram á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík sunnudaginn 25. mars. Hún var afar vel sótt en rúmlega 130 gestir mættu. Kór Menntaskólans í Reykjavík undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar sá um tónlistarflutning. Rektor bauð gesti velkomna og sagði lítið eitt frá sögu skólans og skólastarfinu. Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur er nú haldin í ellefta skipti í Menntaskólanum í Reykjavík og að þessu sinni tóku þátt nemendur úr Austurbæjarskóla, Álftamýrarskóla, Árbæjarskóla, Breiðholtsskóla, Foldaskóla, Hagaskóla, Háteigsskóla, Hlíðaskóla, Húsaskóla, Kársnesskóla, Landakotsskóla, Valhúsaskóla, Vesturbæjarskóla og Vogaskóla. Stærðfræðikeppnin var haldin þriðjudaginn 13. mars í þremur stigum, keppni fyrir 8. bekk, 9. bekk og 10. bekk og 286 nemendur tóku þátt í keppninni. Nemendur í 10 efstu sætunum á hverju stigi fengu viðurkenningarskjal frá skólanum og þrír efstu á hverju stigi fengu peningaverðlaun frá Arionbanka.
16.3.2012
Nemendur afhenda SKB og SPES 1.818.000 kr.
9.3.2012
Myndirfrá góđgerđardegi
6.3.2012
Gott mál í Hagaskóla - miđvikudaginn 7. mars
2.3.2012
Liđ Hagaskóla áfram í Skólahreysti
1.3.2012
Skólahreysti
29.2.2012
Bara gras - frćđslukvöld fyrir foreldra
Miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20:00 verður fræðslukvöld í Hagaskóla fyrir foreldra um skaðsemi kannabis. Erindi flytja Andrés Magnússon geðlæknir og Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Auk þeirra mun Ásta Lára Jónsdóttir verkefnastjóri Frostaskjóls og María Helena Sarabia foreldri ræða hlutverk félagsmiðstöðvar og foreldra.
17.2.2012
Haldiđ upp á ađ einelti hefur aldrei mćlst minna í Hagaskóla
Í nóvember 2011 var hin árlega Olweuskönnun lögð fyrir nemendur Hagaskóla. Við erum stolt af því að tilkynna að árangur skólans var frábær þetta árið. Einelti hefur dregist verulega saman á milli og ára og hefur aldrei mælst minna.
16.2.2012
Birting einkunna í Mentor og á vef Hagaskóla
15.2.2012
Hagó-Való dagurinn
5.2.2012
Félagsvist foreldrafélags Hagaskóla
Miðvikudagskvöldið 8. febrúar kl. 19:30, efnir Foreldrafélag Hagaskóla til félagsvistar á sal skólans. Spilað verður um hinn eftirsótta titil Vistmaður Hagaskóla í fjórða sinn. Nemendur eru hvattir til að taka foreldra sína með á spilakvöldið og foreldrar eru hvattir til að hvetja börn sín til þátttöku.
24.1.2012
Tćknivikur í 9. bekk - heimsóknir í HR
Háskólinn í Reykjavík hefur boðið nemendum í 9. bekk í Hagaskóla uppá spennandi verkefni með það að markmiði að gefa krökkunum nýja sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra á tækni- og raungreinum. Fyrir áramót var nemendum í 10. bekk boðið upp á sams konar dagskrá sem þótti takast það vel að ákveðið var að bjóða nemendum í 9. bekk einnig. Lögð er áhersla á að sýna þeim leiðir til að nýta tæknina til að skapa, leysa verkefni og öðlast frekari skilning á ólíkum viðfangsefninu. Kennarar úr tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild HR taka þátt í verkefninu af hálfu HR. Allir 9. bekkir í Hagaskóla fara í þrjár heimsóknir í HR næstu þrjár vikurnar á þriðjudögum eða miðvikudögum fyrir hádegi. Viðfangsefnin verða meðal annars: Græjuverkfræði (megatróniks), leikjafræði, segulsvið og rafmótorar og hvernig virka leitarvélar?
23.1.2012
Nemakort í strćtó fyrir grunnskólanemendur
Sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafa unnið stöðugt að því að efla samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Um tíma hefur Strætó boðið námsmönnum á framhaldsskóla- og háskólastigi kaup á svokölluðu Nemakorti við góðar undirtektir. Því er það okkur sönn ánægja að segja frá því að nemakortið verði einnig í boði fyrir nemendur á grunnskólastigi.
23.1.2012
Samstarf viđ Borgarbókasafniđ um heimanám
Viltu læra í notalegu umhverfi og gætir þú ef til vill þegið smáaðstoð við heimanámið?
Í Borgarbókasafni er boðið upp á:
- aðstoð við heimanám í notalegu umhverfi
- stuðning við áframhaldandi nám
- tækifæri til að styrkja sjálfsmyndina
- úrval bóka, kvikmynda, tímarita og tónlistar
- skemmtilegan félagsskap í skapandi umhverfi
19.1.2012
Sjúkrapróf
5.1.2012
Framhaldsskólakynning fyrir nemendur í 10. bekk
21.12.2011
Gleđilega hátíđ
Ţriðjudagurinn 20. desember var síðasti kennsludagur fyrir jól. Þessi dagur var að venju óhefðbundinn aðventudagur þar sem nemendur fengu að njóta upplestrar og tónlistar á sal. Margrét Örnólfsdóttir kom og las uppúr bók sinni auk þess sem Laylow spilaði fyrir nemendur og söng. Aðventustundin var mjög skemmtileg og notaleg. Starfsfólk Hagaskóla sendir nemendum og fjölskyldum þeirra hlýjar jóla- og áramótakveðjur með von um að allir njóti hátíðanna.
29.11.2011
Niđurstöđur samrćmdra prófa
25.11.2011
Grćnn dagur - Hagaskóli heilsueflandi grunnskóli
Hagaskóli varð formlegur þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli í janúar 2011. Síðan þá hefur verið unnin undirbúningsvinna fyrir verkefnið en það var opinberlega sett af stað í dag, föstudaginn 25. nóvember á Grænum degi í Hagaskóla. Verkefnið, sem er í umsjón Lýðheilsustöðvar, miðar að því að efla vitund og áhuga nemenda og starfsfólks skólans á heilsueflingu þar sem áhersla er á samstarf við foreldra og nærsamfélag. Hugmyndafræði heilsueflandi skóla byggir á vísindalegum gögnum þar sem sýnt hefur verið fram á að skólinn getur bætt heilsu og líðan nemenda sem hefur jákvæð áhrif á námsárangur.
24.11.2011
Grćnn dagur í Hagaskóla
18.11.2011
Ţemadagur 17. nóvember
Ţemadagurinn hófst á vinabekkjasamveru en þá tóku eldri nemendur á móti vinabekk úr yngri árgangi. Vinabekkirnir fóru í fjölbreytta leiki með það að markmiði að hrista hópinn saman. Að lokinni vinabekkjasamveru tók við þemavinna dagsins en þá unnu nemendur í hópum blönduðum úr öllum árgöngum. Hverjum hóp var stjórnað af tveimur nemendum úr 10.bekk sem stóðu sig afskaplega vel.
18.11.2011
Samvinna í skóla- og frístundamálum í Vesturbć
Síðastliðið sumar samþykkti borgarstjórn Reykjavíkur að sameina menntasvið, leikskólasvið og tómstundaskrifstofu íþrótta- og tómstundasviðs í nýtt svið sem fékk nafnið skóla- og frístundasvið. Undir sviðið heyra allir borgarreknu grunn- og leikskólar í Vesturbæ sem og félags- og frístundamiðstöðin Frostaskjól. Nú stendur yfir stefnumótun fyrir sviðið sem miðar að því að efla samstarf og flæði þekkingar milli allra stofnanna til að tryggja sem besta þjónustu þess.











