Beint á leiđarkerfi vefsins

Hagaskóli

Nemendafréttir

17.2.2012

Haldiđ upp á ađ einelti hefur aldrei mćlst minna í Hagaskóla

Í nóvember 2011 var hin árlega Olweuskönnun lögð fyrir nemendur Hagaskóla. Við erum stolt af því að tilkynna að árangur skólans var frábær þetta árið. Einelti hefur dregist verulega saman á milli og ára og hefur aldrei mælst minna.

5.2.2012

Félagsvist foreldrafélags Hagaskóla

Miðvikudagskvöldið 8. febrúar kl. 19:30, efnir Foreldrafélag Hagaskóla til félagsvistar á sal skólans. Spilað verður um hinn eftirsótta titil Vistmaður Hagaskóla í fjórða sinn. Nemendur eru hvattir til að taka foreldra sína með á spilakvöldið og foreldrar eru hvattir til að hvetja börn sín til þátttöku.

24.1.2012

Tćknivikur í 9. bekk - heimsóknir í HR

Háskólinn í Reykjavík hefur boðið nemendum í 9. bekk í Hagaskóla uppá spennandi verkefni með það að markmiði að gefa krökkunum nýja sýn á heim tækninnar og vekja forvitni þeirra á tækni- og raungreinum. Fyrir áramót var nemendum í 10. bekk boðið upp á sams konar dagskrá sem þótti takast það vel að ákveðið var að bjóða nemendum í 9. bekk einnig. Lögð er áhersla á að sýna þeim leiðir til að nýta tæknina til að skapa, leysa verkefni og öðlast frekari skilning á ólíkum viðfangsefninu. Kennarar úr tækni- og verkfræðideild og tölvunarfræðideild HR taka þátt í verkefninu af hálfu HR. Allir 9. bekkir í Hagaskóla fara í þrjár heimsóknir í HR næstu þrjár vikurnar á þriðjudögum eða miðvikudögum fyrir hádegi. Viðfangsefnin verða meðal annars: Græjuverkfræði (megatróniks), leikjafræði, segulsvið og rafmótorar og hvernig virka leitarvélar?

23.1.2012

Nemakort í strćtó fyrir grunnskólanemendur

Sveitarfélög höfuðborgarsvæðisins hafa unnið stöðugt að því að efla samgöngur á höfuðborgarsvæðinu. Um tíma hefur Strætó boðið námsmönnum á framhaldsskóla- og háskólastigi kaup á svokölluðu Nemakorti við góðar undirtektir. Því er það okkur sönn ánægja að segja frá því að nemakortið verði einnig í boði fyrir nemendur á grunnskólastigi.

23.1.2012

Samstarf viđ Borgarbókasafniđ um heimanám

Viltu læra í notalegu umhverfi og gætir þú ef til vill þegið smáaðstoð við heimanámið?

Í Borgarbókasafni er boðið upp á:
- aðstoð við heimanám í notalegu umhverfi
- stuðning við áframhaldandi nám
- tækifæri til að styrkja sjálfsmyndina
- úrval bóka, kvikmynda, tímarita og tónlistar
- skemmtilegan félagsskap í skapandi umhverfi

19.1.2012

Sjúkrapróf

Sjúkrapróf verða haldin á morgun, föstudaginn 20. janúar. Nemendur sem eiga eftir að taka próf þurfa að gefa sig fram við greinakennara sína. 10. bekkur tekur próf í stofu 26, 9. bekkur í stofu 7 og 8. bekkur í stofu 43.

5.1.2012

Framhaldsskólakynning fyrir nemendur í 10. bekk

Árleg framhaldsskólakynning fyrir nemendur í 10. bekk og foreldra/forráðamenn þeirra verður haldin í Valhúsaskóla á Seltjarnarnesi þriðjudaginn 24. janúar næstkomandi kl. 17 - 18:30. Þetta er samsstarfsverkefni Hagaskóla og Valhúsaskóla. Fulltrúar framhaldsskólanna verða á staðnum til að kynna skóla sína og svara spurningum.

21.12.2011

Gleđilega hátíđ

Ţriðjudagurinn 20. desember var síðasti kennsludagur fyrir jól. Þessi dagur var að venju óhefðbundinn aðventudagur þar sem nemendur fengu að njóta upplestrar og tónlistar á sal. Margrét Örnólfsdóttir kom og las uppúr bók sinni auk þess sem Laylow spilaði fyrir nemendur og söng. Aðventustundin var mjög skemmtileg og notaleg. Starfsfólk Hagaskóla sendir nemendum og fjölskyldum þeirra hlýjar jóla- og áramótakveðjur með von um að allir njóti hátíðanna.

29.11.2011

Niđurstöđur samrćmdra prófa

Nú eru allar niðurstöður samræmdra prófa komin í hús frá Námsmatsstofnun sem og lausnir nemenda sem umsjónarkennarar sjá um að koma til nemenda sinna. Árangur nemenda Hagaskóla var mjög góður sama við hvað er miðað. Meðaleinkunnir eru í öllum tilvikum fyrir ofan lands- og Reykjavíkurmeðaltöl. Hagaskóli er í öllum tilvikum í hópi fimm efstu skóla í Reykjavík. Sjá myndrit með niðurstöðunum.

25.11.2011

Grćnn dagur - Hagaskóli heilsueflandi grunnskóli

Hagaskóli varð formlegur þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli í janúar 2011. Síðan þá hefur verið unnin undirbúningsvinna fyrir verkefnið en það var opinberlega sett af stað í dag, föstudaginn 25. nóvember á Grænum degi í Hagaskóla. Verkefnið, sem er í umsjón Lýðheilsustöðvar, miðar að því að efla vitund og áhuga  nemenda og starfsfólks skólans á heilsueflingu þar sem áhersla er á samstarf við foreldra og nærsamfélag. Hugmyndafræði heilsueflandi skóla byggir á vísindalegum gögnum þar sem sýnt hefur verið fram á að skólinn getur bætt heilsu og líðan nemenda sem hefur jákvæð áhrif á námsárangur.

24.11.2011

Grćnn dagur í Hagaskóla

Föstudagurinn 25. nóvember verður grænn dagur í Hagaskóla. Dagurinn markar upphaf verkefnisins Heilsueflandi grunnskóli þar sem áhersla er á næringu og hollustu þetta skólaár. Nemendur í 10. bekk bjóða uppá grænt grænmetis smoothie. Nemendur og starfsmenn eru hvattir til að mæta í grænu og vera græn að innan og utan.

18.11.2011

Ţemadagur 17. nóvember

Ţemadagurinn hófst á vinabekkjasamveru en þá tóku eldri nemendur á móti vinabekk úr yngri árgangi. Vinabekkirnir fóru í fjölbreytta leiki með það að markmiði að hrista hópinn saman. Að lokinni vinabekkjasamveru tók við þemavinna dagsins en þá unnu nemendur í hópum blönduðum úr öllum árgöngum. Hverjum hóp var stjórnað af tveimur nemendum úr 10.bekk sem stóðu sig afskaplega vel.


Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar

Slóđin ţín:

Nemendur