Beint á leiðarkerfi vefsins

Hagaskóli

Beiðni um aðstoð Námsvers

Nemendur fá sérkennslu og/eða stuðning samkvæmt mati/greiningu fagaðila. Einnig getur fagkennari vakið athygli á slökum námsárangri og þá hefur umsjónarkennari samband við foreldra og bendir á þann möguleika að sækja um námsaðstoð. Í öllum tilfellum er haft samráð við foreldra/forráðamenn.

Sótt er um á sérstökum eyðublöðum,  þar sem ástæður eru tilgreindar og hvaða aðstoð er beðið um. Reynt er að koma til móts við allar óskir. Aðstoðin getur varað í lengri eða skemmri tíma eftir þörfum og eftir því hvernig nemandi nýtir sér aðstoðina.

Beiðni um sérkennslu

PDF icon

Beiðni um sérkennslu í Hagaskóla (PDF skjal)

 

Umsjónarkennari er lykilmaður í þessu ferli en hægt er að hafa samband beint við sérkennara eða námsráðgjafa ef grunur leikur á að barnið þurfi á aðstoð að halda. Öll mál eru skoðuð með jákvæðu hugarfari.

Fyrirspurn til sérkennara

Vinsamlegast sláðu inn kóðann hér að ofan:

Viðburðir

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar