Beint á leiðarkerfi vefsins

Hagaskóli

Námsráðgjöf

Í Hagaskóla er starfandi námsráðgjafi sem nemendur geta leitað til með öll þau málefni sem liggja þeim á hjarta. Námsráðgjöfin er þjónusta fyrir nemendur skólans og fer fram í trúnaði.

Þú getur leitað til námsráðgjafans með málefni sem tengjast: 

  • náms- og   starfsvali
  • framhaldsnámi
  • námsleiðum
  • námstækni
  • vinnubrögðum
  • skipulagningu
  • einbeitingu
  • námsleiða
  • námserfiðleikum
  • prófkvíða

Þú getur líka leitað til námsráðgjafans ef:

  • þér líður illa í skólanum eða heima.
  • þú ert einmana.
  • þér er strítt.
  • þú verður fyrir einelti.
  • þú finnur fyrir kvíða eða depurð.
  • þú átt í erfiðleikum
  • með samskipti við fjölskylduna, kennarana eða bekkjarfélagana

Námráðgjafinn veitir meðal annars ráðgjöf varðandi:

  • náms- og starfsval  
  • námstækni og vinnubrögð  
  • persónuleg mál

Námsráðgjafi 
Ásdís Lovísa Grétarsdóttir - sími 535 6500

Skrifstofa námsráðgjafa er á annarri hæð inn af heilsugæslu.


Viðburðir

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar

Slóðin þín:

Nemendaþjónusta » Námsráðgjöf