Beint á leiðarkerfi vefsins

Hagaskóli

Slys og veikindi

Ef óhapp eða slys verður á skólatíma sér starfsfólk skólans um fyrstu hjálp. Þurfi nemandi að fara á heilsugæslustöð eða slysadeild skulu forráðamenn fara með barninu. Þess vegna er mikilvægt að skólinn hafi öll símanúmer þar sem hægt er að ná í forráðamenn á skólatíma.

Ekki er ætlast til að óhöppum sem gerast utan skólatíma sé sinnt af skólaheilsugæslu.

Mikilvægt er að skólaheilsugæslan viti af börnum sem eru greind með langvinnan og/eða alvarlegan sjúkdóm, s.s. sykursýki, ofnæmi, flogaveiki og blæðingarsjúkdóma. Þessum börnum sinnir skólaheilsugæslan í samráði við forráðamenn barnsins.

Útskýra þarf fyrir starfsfólki skóla meðferð, lyfjagjöf og fleira eftir þörfum með leyfi viðkomandi foreldra.


Viðburðir

 «Maí 2012» 
sunmánþrimiðfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar