Reglubundnar skoðanir
Að fylgjast með vexti barna og unglinga gefur mikilvægar upplýsingar um heilsufar og næringarástand. Vaxtarlínurit er einn besti mælikvarði sem völ er á til að fylgjast með almennu heilsufari og heilbrigði barna. Mikilvægt er að mæla hæð og þyngd með reglulegu millibili til að geta metið frávik á vaxtarlínuriti. Þar sem vöxtur og holdafar getur verið börnum og unglingum viðkvæmt mál er mikilvægt að eftirfylgd sé í samráði við foreldra og framkvæmd á nærgætinn hátt.
Sjónskoðun barna og unglinga er mikilvægur þáttur í heilsuvernd. Sjóngallar eru nokkuð algengir meðal barna og unglinga og aukast með aldrinum. Ef ekki er gripið til viðeigandi úrræða getur það haft áhrif á líðan og námshæfni nemandans.
Með sjónprófi í skóla er sjónskerpa (nærsýni) mæld á hvoru auga fyrir sig með því að ákvarða hversu smáa stafi barnið getur lesið úr ákveðinni fjarlægð. Sjónprófað er með HVOT töflu sem samsett er úr 4 bókstöfum, H-V-O-T
9. bekkur
Sjónpróf, mæld hæð og þyngd.Viðtal við nemanda um líðan, tómstundir, vinatengsl, mataræði, hreyfingu og svefn.
Fylgst er með nemendum í öðrum árgöngum eftir þörfum.











