Fræðsla - heilbrigðishvatning - forvarnir
Skólaheilsugæslan sinnir skipulagðri heilbrigðisfræðslu og hvetur til heilbrigðra lífshátta. Byggt er á hugmyndafræði sem kallast 6-H heilsunnar sem er samstarfsverkefni skólaheilsugæslu og Lýðheilsustöðvar.
Hollusta - Hvíld - Hreyfing - Hreinlæti - Hamingja - Hugrekki og Kynheilbrigði
Að fræðslu lokinni fá nemendur fréttabréf með sér heim. Þá gefst foreldrum kostur á að ræða við börnin um það sem þau lærðu og hvernig þau geti nýtt sér það í daglegu lífi.











