Bólusetningar
Fylgst er með því að nemendur hafi fengið þær bólusetningar sem tilmæli Landlæknisembættis segja til um. Ef börn hafa ekki fengið fullnægjandi bólusetningar verður haft samband við foreldra áður en bætt er úr því.
Bólusetningum er ætlað að verja einstaklinginn gegn alvarlegum smitsjúkdómum og draga úr hættu á smiti í samfélaginu. Sjúkdómar, sem Landlæknisembættið mælir með að öll börn á Íslandi séu bólusett gegn, geta valdið alvarlegum veikindum og jafnvel dauða.
Eftirfarandi bólusetningar fara fram á vegum skólaheilsugæslu og eru samkvæmt tilmælum Landlæknisembættis:
9. bekkur
Mænusótt, barnaveiki, stífkrampi og kíghósti (ein sprauta).
Mikilvægt er að koma með bólusetningarskírteini í skólann þegar bólusetning fer fram. Ef líkur eru á að nemandi sé ekki að fullu bólusettur þá eru forráðamenn hvattir til að hafa samband við skólaheilsugæslu. Bólusetningar barna og unglinga eru alltaf á ábyrgð foreldra/forráðamanna.
Afþakki forráðamenn bólusetningar fyrir börn sín þurfa þeir að tilkynna það skriflega til skólaheilsugæslu og slíkt ber að skrá í heilsufarsskrá viðkomandi barns.











