Bókasafn
Bókasafn skólans er staðsett á efri hæð skólahússins. Þar eru sæti við borð fyrir 36 gesti. Inn af safninu er lesstofa með 24 sætum við borð.
Bókakostur er um 10.000 bindi. Auk þess er safnið áskrifandi að 14 tímaritum og einu dagblaði. Annað safnefni er m.a. um 30 titlar hljóðbóka, 400 myndbönd og 60 margmiðlunardiskar. Safnkostur er skráður í bókasafnskerfið Gegni.
Útlán eru tölvutengd og án endurgjalds. Hver nemandi getur fengið 3 bækur að láni í einu í 4 vikur. Flestar bækur safnsins eru lánaðar heim en handbækur, sérstaklega merktar, eru eingöngu til afnota í skólanum.
Fjórar tölvur eru á safninu til afnota fyrir nemendur. Einnig geta þeir fengið ljósritað þar.
Bókasafnið er opið mánudaga til fimmtudaga kl. 8:05-16:00 og föstudaga kl. 8:05-14:10.
Í frímínútum og öðrum fríum skóladagsins geta nemendur dvalið á safninu eða í lesstofunni við heimanám eða bóklestur.











