Olweusaráætlunin gegn einelti og andfélagslegri hegðun
Hagaskóli er þátttakandi í Olweusarverkefninu gegn einelti sem er samstarfsverkefni menntamála-ráðuneytisins, Sambands íslenskra sveitarfélaga, Kennarasambands Íslands og Heimilis og skóla.
Áætlunin byggir á viðamiklum kenningum og áralöngum rannsóknum Dan Olweusar sem er prófessor og sálfræðingur við háskólann í Bergen.
Innleiðing áætlunarinnar í Hagaskóla hófst haustið 2004 og hefur henni verið fylgt síðan. Frá því í febrúar 2005 hefur könnun verið lögð fyrir nemendur skólans árlega með það að markmiði að greina einelti og bregðast við því sem betur má fara í skólasamfélaginu.
Olweusaráætlunin byggist á ákveðnum grundvallaratriðum sem miða að því að skapa jákvætt skólaumhverfi og góðan skólabrag sem m.a. einkennist af:
- Hlýlegum, jákvæðum áhuga og alúð hinna fullorðnu
- Ákveðnum römmum vegna óviðunandi atferlis
- Ákveðnum viðurlögum við óviðunandi atferli. Stefnuföst beiting neikvæðra afleiðinga (viðurlaga) sem hvorki eru líkamlegar né óvinveittar, brjóti nemandi gegn þeim reglum sem ákveðnar hafa verið
- Því að hinir fullorðnu í skóla og á heimili komi fram af myndugleik
Helstu markmið áætlunarinnar eru að draga úr einelti og annarri andfélagslegri hegðun ásamt því að vekja alla í skólasamfélaginu til vitundar um hvað felst í hugtakinu einelti og sameinast um að hafna því. Til að mögulegt sé að veita viðeigandi fræðslu og eftirfylgni eru ýmsar leiðir farnar, þar á meðal:
- Árlega eru lagðar fyrir kannanir á stöðu eineltis í skólanum og niðurstöður kynntar fyrir starfsfólki, nemendum og foreldrum
- Allir starfsmenn skólans taka þátt í umræðuhópum sem hafa það að markmiði að fræða starfsfólk um hvað felst í einelti og undirbúa það undir að vinna að markvissum aðgerðum gegn því
- Nemendur fá fræðslu um hvað felst í hugtakinu einelti, eðli þess og birtingarform ásamt því að rætt er um afleiðingar eineltis fyrir gerendur, þolendur og aðra í skólasamfélaginu
- Lögð er áhersla á að eftirlitskerfi innan skólans sé virkt, að nemendur treysti sér að leita til fullorðinna innan skólans og að foreldrar hafi samband ef grunur leikur á að einelti eigi sér stað
- Lögð er áhersla á að nemendur skólans séu meðvitaðir um reglur skólans gegn einelti og að þeir virði þær í orði og verki
- Bekkjarfundir eru haldnir reglulega með það að markmiði að styrkja bekkjarbraginn og efla samkennd meðal bekkjarfélaga
Þegar eineltismál koma upp er brugðist við þeim samkvæmt aðgerðaráætlun Olweusar
Niðurstöður könnunar í nóvember 2011Frekari upplýsingar um Olweusarverkefnið gegn einelti má finna á vefslóðinni: http://olweus.is/











