Beint á leiđarkerfi vefsins

Hagaskóli

Heilsueflandi grunnskóli

Heilsueflandi grunnskóli
 

Hagaskóli gerist heilsueflandi grunnskóli  

Hagaskóli varð formlegur þátttakandi í verkefninu Heilsueflandi grunnskóli í janúar 2011. Verkefnið, sem er í umsjón Lýðheilsustöðvar, miðar að því að efla vitund og áhuga  nemenda og starfsfólks skólans á heilsueflingu þar sem áhersla er á samstarf við foreldra og nærsamfélag. Hugmyndafræði heilsueflandi skóla byggir á vísindalegum gögnum þar sem sýnt hefur verið fram á að skólinn getur bætt heilsu og líðan nemenda sem hefur jákvæð áhrif á námsárangur.

Vinna við þarfagreiningu og  stefnumótun er að ljúka og nú þegar er farið að vinna eftir aðgerðaáætlun. Sá þáttur sem er í mestum forgangi er næring sem er viðfangsefni skólaársins 2011-2012.

Áhersaluatrið verða sem hér segir:

  • Næring - skólaárið 2011-2012
  • Hreyfing - skólaárið 2012-2013
  • Lífsstíll og geðrækt - skólaárið 2013-2014

Nánari upplýsingar um verkefnið er að finna á vef Lýðheilsustöðvar:
http://www2.lydheilsustod.is/heilsueflandiskoli


Viđburđir

 «Febrúar 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
   1234
567891011
12131415161718
19202122232425
26272829   

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar

Slóđin ţín:

Heilsueflandi grunnskóli