Velkomin á vefsetur Hagaskóla!
Hagaskóli, stofnsettur 1. október 1958, er unglingaskóli sem ţjónar Vesturbćnum, frá flugvelli og Lćkjargötu út ađ Seltjarnarnesi. Hingađ sćkja nemendur úr Grandaskóla, Melaskóla og Vesturbćjarskóla. Skólinn fylgir nýrri, metnađarfullri stefnu sem allir starfsmenn tóku ţátt í ađ móta.
Fréttir
17.2.2012
Haldiđ upp á ađ einelti hefur aldrei mćlst minna í Hagaskóla
Í nóvember 2011 var hin árlega Olweuskönnun lögð fyrir nemendur Hagaskóla. Við erum stolt af því að tilkynna að árangur skólans var frábær þetta árið. Einelti hefur dregist verulega saman á milli og ára og hefur aldrei mælst minna.
16.2.2012
Birting einkunna í Mentor og á vef Hagaskóla
Nú hafa einkunnir haustannar verið aðgengilegar í Mentor í tvær vikur. Foreldrar og nemendur eru hvattir til þess að kynna sér þær. Það er gert með því að skrá sig inn í Mentor og velja svo flipann „Einkunnir“ þegar komið er í nemendaspjaldið. Þar sjást allar einkunnir annarinnar. Ef nemendur eða foreldrar rekast á augljósar villur eru þeir beðnir um að hafa samband við skólann. Nánari sundurliðun þessara einkunna er svo að finna inni í verkefnabókum nemenda sem eru aðgengilegagr í Mentor. Meðaltöl prófs- og vinnueinkunna í öllum árgöngum eru birt á vef Hagaskóla.
15.2.2012
Hagó-Való dagurinn
Fimmtudaginn 16. febrúar munu Valhýsingar og Hagskælingar skemmta sér saman og keppa í hinum ýmsu keppnisgreinum. Segja má að um hefð sé að ræða sem rekja má aftur til ársins 2009 þegar vináttudagur þessara skóla var fyrst haldinn. Unglingarnir skipulögðu viðburðinn í samvinnu við starfsfólk félagsmiðstöðva sinna og eiga mikið hrós skilið.











