Foreldrafréttir
4.5.2012
9.TMG sigrađi í stćrđfrćđikeppni grunnskóla BEST
27.4.2012
Hagaskóli fékk brons í skólahreysti
26.4.2012
Liđ Hagaskóla sigurvegari í Spurningakeppni grunnskólanna
Úrslitin í Spurningakeppni grunnskólanna fóru fram á Markúsartorgi í beinni útsendingu á RÚV í gær miðvikudag. Þar áttust við lið Hagaskóla og grunnskóla Dalvíkur.Úrslitin urðu þau að Hagaskóli bar sigur úr býtum með 28 stigum gegn 17. Spurningakeppni grunnskólanna hefur vaxið mikið undanfarið en að þessu sinni tóku 60 grunnskólar þátt í keppninni en eins og jafnan stendur aðeins einn uppi sem sigurvegari að keppni lokinni.
18.4.2012
Vetur kvaddur međ hreinsun
Nemendur í Hagaskóla sýndu samfélagsábyrgð í morgun og tíndu upp rusl í næsta nágrenni skólans. Þau tóku þar með áskorun borgarstarfsmanna um að hver og einn legði sitt af mörkum til að hreinsa borgina eftir veturinn. Krakkarnir fóru um Vesturbæ í flokkum vopnuð latex-hönskum og plastpokum og fylltu hvern pokann af öðrum af kaffimálum, sígarettupökkum, stubbum og flugeldarusli. Af nógu var að taka við helstu umferðargöturnar og í runnum. Eftir þetta litla góðverk var börnunum boðið upp á grillaðar pyslur og notuðu mörg þeirra tækifærið og léku sér í blíðunni þar til að kennsla hófst aftur. Gott morgunverk sem vonandi skapar umræður um góða umgengni og skyldur okkar við samfélagið. Sjá myndir hér.
30.3.2012
Páskaleyfi
Síðasti kennsludagur fyrir páskaleyfi er í dag, föstudaginn 30. mars. Kennsla hefst aftur miðvikudaginn 11. apríl.
29.3.2012
Átta nemendur Hagaskóla verđlaunađir í stćrđfrćđikeppni MR
Verðlaunaafhending í keppni grunnskólanemenda í stærðfræði fór fram á Hátíðasal Menntaskólans í Reykjavík sunnudaginn 25. mars. Hún var afar vel sótt en rúmlega 130 gestir mættu. Kór Menntaskólans í Reykjavík undir stjórn Guðlaugs Viktorssonar sá um tónlistarflutning. Rektor bauð gesti velkomna og sagði lítið eitt frá sögu skólans og skólastarfinu. Stærðfræðikeppni fyrir grunnskólanemendur er nú haldin í ellefta skipti í Menntaskólanum í Reykjavík og að þessu sinni tóku þátt nemendur úr Austurbæjarskóla, Álftamýrarskóla, Árbæjarskóla, Breiðholtsskóla, Foldaskóla, Hagaskóla, Háteigsskóla, Hlíðaskóla, Húsaskóla, Kársnesskóla, Landakotsskóla, Valhúsaskóla, Vesturbæjarskóla og Vogaskóla. Stærðfræðikeppnin var haldin þriðjudaginn 13. mars í þremur stigum, keppni fyrir 8. bekk, 9. bekk og 10. bekk og 286 nemendur tóku þátt í keppninni. Nemendur í 10 efstu sætunum á hverju stigi fengu viðurkenningarskjal frá skólanum og þrír efstu á hverju stigi fengu peningaverðlaun frá Arionbanka.
16.3.2012
Nemendur afhenda SKB og SPES 1.818.000 kr.
9.3.2012
Myndirfrá góđgerđardegi
6.3.2012
Gott mál í Hagaskóla - miđvikudaginn 7. mars
2.3.2012
Liđ Hagaskóla áfram í Skólahreysti
1.3.2012
Skólahreysti
29.2.2012
Bara gras - frćđslukvöld fyrir foreldra
Miðvikudaginn 29. febrúar kl. 20:00 verður fræðslukvöld í Hagaskóla fyrir foreldra um skaðsemi kannabis. Erindi flytja Andrés Magnússon geðlæknir og Karl Steinar Valsson aðstoðaryfirlögregluþjónn. Auk þeirra mun Ásta Lára Jónsdóttir verkefnastjóri Frostaskjóls og María Helena Sarabia foreldri ræða hlutverk félagsmiðstöðvar og foreldra.











