Beint á leiđarkerfi vefsins

Hagaskóli

Foreldrarölt - vorönn

Dagsetningar skólaárið 2010-2011

Dagsetning  Staðsetning  Bekkur
8.10.2010 Hagaskóli 8BSÓ
15.10.2010 Vesturbæjarlaug 8EKH
22.10.2010 Hagaskóli 8ET
29.10.2010 Vesturbæjarlaug 8GKÞ
5.11.2010 Hagaskóli 8SG
12.11.2010 Vesturbæjarlaug 8TMG
19.11.2010 Hagaskóli 9ÁR
26.11.2010 Vesturbæjarlaug 9GÓL
3.12.2010 Hagaskóli 9HBI
10.12.2010 Vesturbæjarlaug 9MA
15.12.2010 Hagaskóli, jólaball Hagaskóla  9MM
17.12.2010 Hagaskóli 9VÁK
7.1.2011 Vesturbæjarlaug 10BB
14.1.2011 Hagaskóli 10BPJ
21.1.2011 Vesturbæjarlaug 10HÞV
28.1.2011 Hagaskóli 10KA
4.2.2011 Vesturbæjarlaug 10SB
11.2.2011 Hagaskóli 10SS
16.2.2011 Hagaskóli, Hagó-Való ball 8BSÓ
18.2.2011 Vesturbæjarlaug 10STH
25.2.2011 Hagaskóli 8EKH
4.3.2011 Vesturbæjarlaug 8ET
11.3.2011 Hagaskóli 8GKÞ
16.3.2011 Hagaskóli, árshátíð nemenda 8SG
18.3.2011 Vesturbæjarlaug 8TMG
25.3.2011 Hagaskóli 9ÁR
1.4.2011 Vesturbæjarlaug 9GÓL
8.4.2011 Hagaskóli 9HBI
15.4.2011 Vesturbæjarlaug 9MA
29.4.2011 Hagaskóli 9MM
6.5.2011 Vesturbæjarlaug 9VÁK
13.5.2011 Hagaskóli 10BB
20.5.2011 Vesturbæjarlaug 10BPJ
27.5.2011 Hagaskóli 10HÞV
3.6.2011 Vesturbæjarlaug 10KA


Foreldrarölt - til hvers?

Tilgangurinn með foreldrarölti er að varna því að unglingar lendi í vanda og koma í veg fyrir hópamyndanir eftir löglegan útivistartíma. Nærvera fullorðinna þar sem unglingar hafa safnast saman hefur róandi og fyrirbyggjandi áhrif. Með þessu minnkum við líkurnar á að unglingarnir lendi í aðstæðum sem ógna þeim eða hræða. Slík nærvera gefur unglingunum líka tækifæri til að leita aðstoðar fullorðinna ef á þarf að halda.

Á ég að gæta bróður míns?

Margir foreldrar hugsa sem svo: Barnið mitt er ekki úti á kvöldin. Ég sé um minn ungling og af hverju ætti ég að vera að eyða tíma mínum í að passa annarra manna börn?

Við þessu er einfalt svar: Með því hefur þú áhrif á það félagslega umhverfi sem þú og barnið þitt býr við. Því færri sem nota vímuefni, eru lagðir í einelti eða beittir ofbeldi af öðru tagi, því betra og öruggara er það umhverfi sem unglingurinn þinn býr við. Við berum öll ábyrgð á okkar nánasta umhverfi, hættum þess og hvar unglingar geta haft athvarf til neyslu óæskilegra efna og hópamyndunar.

Nærvera fullorðinna hefur áhrif

  • Ósætti milli einstaklinga eða hópa þróast síður yfir í alvarlegt ofbeldi 
  • Drykkja eða önnur vímuefnaneysla fer síður fram þar sem fullorðnir eru nærstaddir. 
  • Ţeir sem selja áfengi eða önnur vímuefni láta síður sjá sig ef fullorðnir eru til staðar.

Hvernig á að hegða sér á foreldrarölti? 

  • Við eigum að vera sýnileg. Merkjum okkur með barmmerkjunum. 
  • Við þurfum að vera til staðar ef unglingarnir leita til okkar en forðumst að stjórna þeim. 
  • Við þurfum að geta hlustað og leiðbeint án þess að stjórna. 
  • Við eigum helst aldrei að vera færri en fimm saman. 
  • Við hringjum á lögreglu ef upp koma árekstrar, ofbeldi, slys, vímuefnaneysla og - sala eða annað sem krefst afskipta. Tökum fram að við erum foreldrar á rölti. 
  • Við ræðum ekki málefni einstaklinga sem við reynum á foreldrarölti við óviðkomandi.
Kaupum ekki áfengi handa unglingum!

Unglingar og umhverfi þeirra

Unglingurinn stendur á þröskuldi fullorðinsáranna en er enn með annan fótinn í barnæskunni. Flestir unglingar fara klakklaust í gegnum þessi mótunarár. En ekki allir. Það er margt sem kallar, sumt jákvætt, annað neikvætt og umhverfið hefur mikil áhrif á valið. Margir unglingar umgangast fullorðna takmarkað og verja mestum tíma sínum með jafnöldrum. Þeir eru forvitnir og vilja gjarnan prófa ýmislegt. Þar á meðal eru vímuefni. Þeir sem stunda sölu á vímuefnum vita að margir unglingar eru auðveld bráð. Þeir sækja stíft í þennan hóp með von um skjótfengan gróða og trygga viðskiptavini til lengri tíma.

Unglingarnir okkar eru í hættu og við henni verðum við að bregðast. Ein leiðin er að taka þátt í foreldrarölti.

Staðreyndir um vímuefni og ofbeldi

Rannsóknir sýna bein tengsl á milli vímuefnaneyslu og ofbeldis. Því meirasem unglingar nota vímuefni eru meiri líkur á að þau beiti eða séu fórnarlömb ofbeldis. Á þetta bæði við um pilta og stúlkur.

Íslensk ungmenni lenda í meiri vandræðum vegna eigin áfengisdrykkju en jafnaldrar þeirra í öðrum Evrópulöndum. Má þar nefna ógætilega og óæskilega kynlífsreynslu, þau verða oftar fyrir ránum og þjófnuðum, eru í meiri slysahættu og lenda frekar í slagsmálum. 

Ţví yngri sem unglingar eru þegar þeir hefja neyslu áfengis því alvarlegri eru vandamálin sem henni fylgja þegar fram í sækir.

Verum vel heima í útivistarreglunum!

Samþykkjum ekki foreldralaus samkvæmi!

Textinn er tekinn af vef Heimilis og skóla.


Viđburđir

 «Maí 2012» 
sunmánţrimiđfimföslau
  12345
6789101112
13141516171819
20212223242526
2728293031  

Sjá nánar á vef Reykjavíkurborgar

Slóđin ţín:

Foreldrar » Foreldrarölt